Innlent

Tvíbreið brú í stað einbreiðrar

Verið er að leggja lokahönd á gerð nýrrar brúar yfir Vatnsholtsá í Staðarsveit á Snæfellsnesi, en þar var fyrir einbreið brú. "Árið 2006 verður tekin einbreið brú á leiðinni niður í Stykkishólm, en aðrar brýr eru á langtímaáætlun," segir Ingvar Árnason, deildarstjóri hjá Vegagerðinni í Borgarnesi, en þar á meðal eru einbreiðar brýr yfir Hítará og Haffjarðará. Vegagerðin stefnir að því að á endanum verði búið að útrýma öllum einbreiðum brúm.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×