Innlent

Holtasóleyin hafði það

Holtasóley er þjóðarblóm Íslendinga. Þetta fagra blóm hlaut fáum atkvæðum fleiri en gleym-mér-ey og blóðberg. Í næstu sætum voru blágresi, hrafnafífa og lambagras en geldingahnappur rak lestina. Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, kunngjörði niðurstöðurnar síðdegis í gær en áður höfðu þær verið kynntar ríkisstjórn landsins. Þjóðarblóminu er ætlað að hafa táknrænt gildi og vera sameiningartákn. Þá er það hugsað til kynningar- og fræðslustarfs, innanlands og utan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×