Stjórnleysi í útgáfu leyfa 22. október 2004 00:01
Einungis 40 prósent starfandi fiskeldisstöðva eru með rekstrarleyfi og af 83 starfandi stöðvum virðast aðeins 70 vera með starfsleyfi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Valdimars Inga Gunnarssonar um stöðu og framtíðaráform í íslensku fiskeldi. Skýrslan var unnin fyrir landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið. Ástæðan fyrir þessum brotalömum er að leyfisveitingakerfið er bæði flókið og hægvirkt segir í skýrslunni. Dæmi eru um að umsóknir hafi verið í vinnslu í meira en ár. Valdimar Ingi telur að íslenska kerfið sé flóknara en kerfið í Noregi, Kanada og Skotlandi. Telur hann þetta meðal annars stafa af því að starfsleyfi og rekstrarleyfi eru aðskilin og að þrjú ráðuneyti, fjórar stofnanir og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna komi við sögu við leyfisveitingarnar. Komið hafa upp vandamál vegna þess hversu kerfið er flókið. Í Rauðuvík í Eyjafirði sóttu til dæmis tvö fyrirtæki um starfsleyfi á sama svæði til tveggja mismunandi stofnana. Brim fiskeldi ehf. sótti um leyfi hjá Umhverfisstofnun en Norðurskel ehf. til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra. Valdimar Ingi segir einnig dæmi um að stofnanir biðji um mismunandi gögn áður en þau gefi út starfsleyfi og það verði að teljast óeðlilegt. Ódýrara er að sækja um starfsleyfi fyrir eldi undir 200 tonnum og hefur það haft þær afleiðingar að sums staðar hafa fyrirtæki sótt um starfsleyfi fyrir nokkrar 200 tonna fiskeldisstöðvar í sama firðinum. Þannig hafa fyrirtæki komist hjá því að borga hærra gjald og kostnað við að tilkynna framkvæmd til Skipulagsstofnunar. Til þess að bæta úr þessari stöðu leggur Valdimar Ingi til að eitt fagráðuneyti hafi yfirumsjón með útgáfu leyfa til fiskeldis. Telur hann að þannig sé hægt að tryggja markvissari stjórnun, samhæfingu og yfirsýn. Einnig leggur hann til að útbúinn verði leiðbeiningarbæklingur til að staðla og samræma umsóknarferlið. Að lokum telur hann brýnt að gera viðeigandi laga- og reglugerðarbreytingar til að auðvelda skipulagningu strandsvæða.
Fréttir Innlent Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira