Innlent

Vel að sér um alþjóðastofnanir

Íslendingar virðast ágætlega að sér um alþjóðastofnanir samkvæmt könnun sem fram fór í rúmlega 60 löndum í sumar. Í könnuninni var meðal annars spurt hvort fólk hafi heyrt um ýmsar alþjóðastofnanir. Íslendingar skáru sig nokkuð úr og hafa fleiri Íslendingar heyrt um þessar fjórar stofnanir en nokkur önnur þjóð þar sem könnunin fór fram. Um 97% þjóðarinnar hafa heyrt um Sameinuðu þjóðirnar, Evrópusambandið (ESB)og Atlantshafsbandalagið (NATO) og um 85% hafa heyrt um Efnahags- og framfarastofnunina (OECD).



Fleiri fréttir

Sjá meira


×