Innlent

Ekið á tvö lömb

Bíl var ekið á tvö lömb skammt frá Borgarnesi í gærkvöldi og drapst annað þeirra strax en aflífa þurfti hitt. Bíllinn skemmdist eitthvað en var ökufær eftir. Lausaganga búfjár er bönnuð á þessu svæði en talið er að lömbin hafi sloppið úr girðingu. Þá voru laus hross á ferðinni á þjóðveginum austur í Ölfusi í nótt en búið er að koma þeim í girðingu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×