Innlent

Rafmagnslaust í Hlíðahverfi í gær

Rafmagnslaust varð í um það bil klukkustund í Hlíðahverfinu í Reykjavík í gærkvöldi vegna bilunar í háspennustrengs. Meðal annars varð rafmagnslaust í Perlunni og rafmagn fór af umferðarljósunum á mótum Miklubrautar og Lönguhlíðar og þurftu lögreglumenn að handstýra umferð um gatnamótin þar til rafmagn komst aftur á.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×