Innlent

Hefst við í stolnum bílum

Húsnæðismál ungs manns eru í uppnámi eftir að lögreglan hafði afskipti af ólöglegum og óvenjulegum búferlaflutningum hans. Það hófst með því að maðurinn fannst sofandi í bíl á bílastæði uppi í Breiðholti. Kom í ljós að bíllinn var stolinn og annar stolinn bíll fannst skammt frá þar sem bílnum, sem maðurinn fanst sofandi í, hafði verið stolið. Í ljós kom að undanfarið hefur ungi maðurinn stolið að minnsta kosti sjö bílum og hafst við í þeim, einum af öðrum. Í leiðinni hefur hann svo stolið ýmsum verðmætum úr þeim og selt sér til viðurværis.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×