Lífvörður drottningar járnaður 21. október 2004 00:01 "
Ég var á hestasýningu úti í Englandi um helgina og þar mátti íslenskur knapi prísa sig sælan þegar einn af lífvörðum drottningarinnar ætlaði að heilsa honum að sjómannasið," segir Jónas R. Jónsson, umboðsmaður íslenska hestsins. Atvikið varð eftir sýninguna þar sem Íslendingar sköruðu fram úr og hlutu nafnbótina "Star of the Show" eða Stjörnur sýningarinnar. "Þarna sýndu úrvalsgóðir knapar íslenska hestinn og í lok sýningarinnar kom lífvarðasveit drottningar í fullum skrúða og myndaði göng með upplyftum spjótum sínum. Sigurvegarar í ýmsum flokkum voru kallaðir inn og að lokum var tilkynnt að stjarna sýningarinnar væri íslenski hesturinn sem okkur fannst mjög huggulegt. Seinna um nóttina voru íslensku knaparnir staddir á barnum á hótelinu. Þá kemur einn lífvarðanna og rýkur á Jóhann Skúlason, sem er heimsmeistari í tölti og kynntur sem slíkur á sýningunni. Vörðurinn ætlaði í hann og spurði jafnframt hvað hann héldi að þessir Íslendingar væru, að kalla sig heimsmeistara. Þeir væru bara fífl. Svo kæmu þeir bara og stælu sýningunni. Lífverðirnir voru ekki sáttir við það því þeir hefðu alltaf verið nefndir stjörnur sýningarinnar. Svo mikil var gremja lífvarðarins, að það þurfti að flytja hann í burtu í járnum. Þá áttuðum við okkur á því að lífverðir drottningar hafa alltaf fengið þennan titil þar til nú. Þá skildum við að þetta var miklu meira mál, þessi titill, heldur en við höfðum gert okkur grein fyrir."
Fréttir Innlent Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Innlent Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Innlent Fleiri fréttir Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Sjá meira