Innlent

Bílaröð á sandinum

Brúin yfir Núpsvötn var opnuð fyrir umferð á ný um ellefuleytið í gærmorgun en hún skemmdist mikið í óveðrinu í fyrradag þegar málmgrindur sem lagðar voru í brúna fyrir skömmu flettust upp. Ekki var stætt á brúnni þangað til í gærmorgun og því gat viðgerð ekki hafist fyrr en þá. Að sögn lögreglunnar í Vík biðu tugir bíla, þar af um tuttugu vöruflutningabílar, á sandinum sitt hvorum megin brúarinnar þegar hún var opnuð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×