Innlent

Lambakjöt ódýrt erlendis

Íslenska lambakjötið er ódýrara í verslunum erlendis en á Íslandi. Þannig selur bandaríska verslunarkeðjan í Wisconsin kílóið af íslensku lambalæri á 840 krónur á meðan verslunin Nóatún selur það á 1198 krónur. Mörg ár eru síðan útflutningsbætur voru aflagðar og því kemur Özuri Lárussyni, frkvstj. Landssamtaka sauðfjárbænda, þessi verðmunur á óvart. Hann segir að síðast þegar kjötverð var kannað var það nánast helmingi hærra. Því hljóti að vera um sérstakt tilboð að ræða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×