Innlent

Ekki refsað fyrir að berja konuna

Héraðsdómur Reykjaness sleppti í gær manni við refsingu, sem sannað þótti að hafði gengið í skrokk á eiginkonu sinni. Maðurinn viðurkenndi að hafa lagt hendur á konuna eftir að grunur kom upp um framhjáhald hennar. Dómarinn taldi að konan hefði á einhvern hátt átt þátt í að reita manninn til reiði, áður en hann tók hana hálstaki, reyndi að nauðga henni og hún hljóp út á götu fáklædd. Hann fékk skilorðsbundinn dóm sem fellur niður ef hann brýtur ekki lögin næstu þrjú ár. Sjá nánari umfjöllun í DV í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×