Innlent

Vetrardekkin viðruð

Annir voru á dekkjaverkstæðum í gær þar sem fjöldi ökumanna vildi losna af sumarbörðunum í fyrstu vetrarhálkunni sunnan heiða. Lausleg athugun Fréttablaðsins sýndi að nagladekkin væru á undanhaldi, heilsársdekk og grófmynstruð vetrardekk nytu æ meiri vinsælda. Sama lauslega athugunin leiddi í ljós að umfelgun á fjórum hjólum kostar í kringum fimm þúsund krónur. Strangt til tekið er óheimilt að aka á negldum fyrir 1. nóvember en þau lög lúta í lægra haldi fyrir aðstæðum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×