Innlent

Líflegt á kirkjuþingi

Líflegt var í Grensáskirkju á öðrum degi kirkjuþings í gær. Umræður spunnust um stöðu samningamála við ríkið eftir að kirkjumálaráðherra vék að prestssetrum í ræðu sinni á sunnudag. Bent var á var að vilja hafi skort til að ræða þessi mál af hálfu ráðamanna og því hafi verið erfitt að þoka þeim áfram. Þingmenn tóku undir orð biskups frá því á sunnudag vegna verkfalls kennara og ítrekuðu nauðsyn þess að búa vel að börnum landsins en auk þess var nýbirt könnun um trúarlíf Íslendinga skeggrædd. Skýrsla stjórnar prestsetrasjóðs er meðal þess sem er á dagskránni í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×