Björgunarsveitir kallaðar út 18. október 2004 00:01
Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út til að aðstoða fólk sem lent hefur í vandræðum í bílum sínum vegna ófærðar og illviðris sem gengur nú yfir norðaustanvert landið. Mjög hvasst er einnig í vindhviðum vestur eftir Suðurströndinni. Flestir fjallvegir á Austfjörðum eru illfærir eða jafnvel ófærir, auk þess sem skyggni er afar slæmt vegna hvassviðris og skafrennings. Hálka er líka um norðanvert landið og á Vestfjörðum. Stór dráttarbíll með tengivagn valt í mikilli vindhviðu þegar bíllinn, sem var á austurleið, átti skammt ófarið að Kirkjubæjarklaustri um klukkan sex í morgun. Ökumanninn sakaði ekki en bíllinn lagðist á hliðina og lokaði veginum. Vagninn, sem var tómur, hafnaði utan vegar. Vegfarendur komust framhjá vettvangi um Hrífunesveg. Með stórvirkum vinnuvélum hefur nú tekist að koma bílnum á réttan kjöl og opna veginn á ný. Mikið hvassviðri er á Mýrdalssandi með sandfoki og snjófjúki og undir Landeyjum hefur gengið á með miklum rokum. Í einni slíkri fauk kerra, sem var aftan í stórum flutningabíl, á bílinn á móts við Þorvaldseyri en ökumann sakaði ekki. Lögreglan á Hvolsvelli varar fólk við að fara þar um á léttum bílum. Spáð er hvassviðri á Austurlandi fram undir kvöld. Hálkublettir eru auk þess víða á Vesturlandi og undir Hafnarfjalli hafa bílar lent í vandræðum vegna hvassviðris.
Fréttir Innlent Mest lesið Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Innlent Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Erlent Fleiri fréttir Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Sjá meira