Olíulinda leitað við Ísland 18. október 2004 00:01
Búist er við auknum áhuga olíufélaga á að leita að olíulindum í grennd við Ísland og víðar á norðurslóðum vegna hækkandi olíuverðs og ótryggs ástands á mörgum helstu olíuvinnslusvæðunum. Tvö olíuleitarfyrirtæki, sem fengu leyfi til frumathugana á íslenska hluta Jan Mayen hryggjarins, hafa nú lokið athugunum og bjóða olíufélögum niðurstöður sínar til sölu. Þá finnast æ fleiri vísbendingar um að olíu kunni að vera að finna á landgrunninum norður af landinu, að sögn Sveinbjörns Björnssonar hjá Orkustofnun. Olíufélögin eru hins vegar enn vantrúuð á olíulindir þar, þótt jarðgas finnist þar líkt og við olíulindir annars staðar, einkum vegna þess hve jarðskorpan er sprungin fyrir norðan land vegna jarðhræringa. Allt um það þá er nú verið að endurskoða lög og reglugerðir varðandi nýtingu orkulinda í Norðaustur-Atlantshafi og þessa stundin er haldin málstofa í Háskóla Íslands um málið þar sem sérfræðingar frá Noregi, Færeyjum, Írlandi og Grænlandi flytja erindi. Olíuverð er komið yfir fimmtíu og fimm dollara eftir að það hækkaði töluvert í Singapúr í morgun. Sama verð var þegar olíumarkaðir í New York voru opnaðir nokkrum klukkustundum síðar. Olíusérfræðingar eru á því að verðið muni enn hækka og að sextíu dollarar fyrir olíufatið sé alls ekki óraunhæf tala.
Fréttir Innlent Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Innlent Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Sjá meira