Verðbólga verður rúm 6% 17. október 2004 00:01
Verðbólga verður rúm sex prósent í upphafi árs 2007 samkvæmt hagspá Landsbankans fyrir árin 2004 til 2010. Í spám fjármálaráðuneytisins er hins vegar gert ráð fyrir að verðbólga haldist á bilinu þrjú til 3,5 prósent fram til ársins 2007, en þá muni hún lækka í tvö prósent. Fram kemur í spánni að á næstu árum sé fyrirsjáanleg mikil uppsveifla í efnahagslífinu sem muni að öllum líkindum reyna mjög á þol hagkerfisins og leiða til ójafnvægis sem síðan leiði til stormasamrar aðlögunar í efnahagslífinu. Nú sé viðskiptahallinn þegar kominn vel yfir það sem almennt samrýmist efnahagslegum stöðugleika þrátt fyrir að stóriðjuframkvæmdir séu rétt að byrja. Þá sé verðbólgan einnig þegar komin töluvert fram úr verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Býst Landsbankinn við að verðbólgan hækki áfram og nái hámarki í upphafi árs 2007 en lækki síðan aftur samfara styrkingu krónunnar. Áhrif viðamikilla breytinga og aukinnar samkeppni á fasteignalánamarkaði eru talin hafa gjörbreytt þróuninni á fasteignamarkaði og leitt til lækkunar langtímavaxta sem muni án efa auka enn frekar á innlenda eftirspurn, bæði neyslu og íbúðafjárfestingar. Því til viðbótar muni fyrirhugaðar skattalækkanir auka kaupmátt ráðstöfunartekna, sérstaklega um það bil sem uppsveifla fjarar út að stóriðjuframkvæmdum loknum. Edda Rós Karlsdóttir, hjá Greiningardeild Landsbankans, segir að sá mikli hagvöxtur sem sé fyrirsjáanlegur á næstu árum kalli á aðhaldssama hagstjórn. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs ætli ríkisstjórnin að skila afgangi sem nemi rúmu prósenti af landsframleiðslu á næstu tveimur árum. Hins vegar séu líkur á því að þessi áform gangi ekki eftir og fjármálastefna hins opinbera verði ekki eins aðhaldssöm og að sé stefnt.
Fréttir Innlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Innlent Fleiri fréttir Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Sjá meira