Hætt eftir að Jón komst í málið 17. október 2004 00:01
Skömmu eftir að Jón Steinar Gunnlaugsson komst á snoðir um gerð sjónvarpsþáttar um prófessorsmálið svokallaða var hætt við gerð þáttarins. Dagskrárstjóri sjónvarps segir Jón Steinar ekki hafa komið nálægt þeirri ákvörðun. Guðrún Lilja Hólmfríðardóttir tjáði sig um málið í morgunblaðinu á fimmtudag. Faðir hennar var sýknaður af ákæru um kynferðisbrot gegn henni í hæstarétti. Hún greindi frá því að tekið var við hana viðtal til sýningar í þáttinn Sönn Íslensk sakamál en að eftir að Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttardómri, frétti af gerð þáttarins hafi verið hætt við gerð hans. Rúnar Gunnarsson, dagskrárstjóri ríkissjónvarpsins, segir í tilkynningu að Jón Steinar hafi ekki komið nálægt þeirri ákvörðun. Endurmat hafi leitt það í ljós að ákveðið var að hætta við gerð þáttarins. Reyndar segir Guðrún Lilja ekki að Jón Steinar hafi stöðvað þáttinn. Hún bendir á að um leið og hann hafi komist á snoðir um hann hafi þátturinn verið stöðvaður. Þeir sem þekkja til heimildaþáttagerðar vita að afar sjaldan ef einhvern tíma eru tekin viðtöl með öllum þeim tilkostnaði sem af því hlýst ef ekki liggur fyrir ákvörðun um að sýna efnið. Þá er jafnframt afar sjaldgæft að greitt sé fyrir efni sem ekki er sýnt en það var gert í þessu tilfelli. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu lá sú ákvörðun fyrir hjá ríkissjónvarpinu að sýna þáttinn þegar stofnunin skipti um skoðun. Þá hefur fréttastofu líka vitneskju um það að ýmislegt nýtt kom fram í viðtalinu sem ekki hafði heyrst áður. Þrjár greinar voru ritaðar til varna Jóni Steinari í morgunblaðið í gær en hann varð hæstaréttardómari á föstudag.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Fleiri fréttir Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Sjá meira