Þjóðleikhúsið rýmt eftir eld 16. október 2004 00:01
Rýma þurfti Þjóðleikhúsið í gærkvöld eftir að eldur kom upp í eldhúsi Þjóðleikhúskjallarans. Um átta hundruð manns voru í húsinu þegar brunavarnarkerfið fór í gang en svo vel vildi til að hlé var á leiksýningunum Edith Piaf og Svört mjólk. Marteinn Geirsson varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir að eldurinn hafi nánast verið slokknaður þegar þeir komu á staðinn, en þeir hafi samt brugðist skjótt við og sent reykkafara inn í eldhús. Hann segir að kviknað hafi í feiti, en sem fyrr segir hafi eldurinn verið slokknaður þegar slökkvilið mætti á staðinn. Verr hefði hins vegar getað farið, enda sé húsið gríðarlega stórt, sem hefði getað valdið slökkvilið miklum vandræðum. Bið leikhúsgestanna varð hins vegar ekki löng og héldu sýningarnar áfram gestunum til mikillar ánægju án vafa. Í það minnsta verður ekki deilt um gleðina sem ríkti á tröppum Þjóðleikhússins á meðan slökkviliðið vann sín verk, en Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona og hljómsveitin sem spilar í verkinu Edith Piaf létu þá ekki sitt eftir liggja til að skemmta leikhúsgestunum.
Fréttir Innlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira