Innlent

Teknir fyrir að hafa í haldi dóp

Lögreglan í Kópavogi handtók í gær tvo menn og gerði upptæk tæplega 400 grömm af kannabisefnum, e-töflum og amfetamíni í húsi í austurbæ Kópavogs. Þá fannst líka töluvert af landa í húsinu. Mönnunum var sleppt að loknum yfirheyrslum og telst málið upplýst. Einn ökumaður var tekinn í Kópavogi grunaður um ölvun við akstur, og annar í Keflavík. Þar var ennfremur tilkynnt um líkamsárás í miðbænum í nótt. Áverkar reyndust ekki alvarlegir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×