Innlent

Veiði dróst saman í september

Heildarafli íslenskra skipa í september var 62.800 tonn, sem er 32.000 tonnum minna en í september í fyrra samkvæmt Hagstofu Íslands. Verðmæti fiskaflans dróst saman um 8,8 prósent samkvæmt föstu verðlagi ársins 2002. Það sem af er árinu hefur verðmæti fiskaflans dregist saman um 1,1 prósent miðað við í fyrra. Botnfiskaflinn er var svipaður í september síðastliðnum og í september í fyrra. Uppsjávaraflinn dregst hins vegar töluvert saman og munar þar mestu um litla kolmunnaveiði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×