Fá 14 milljónir í bætur 15. október 2004 00:01
Félagsmálaráðherra ætlar að beita sér fyrir því að hjónin á Torfastöðum fái allt að því fjórtán milljónir króna í bætur þar sem meðferðarheimili þeirra hafi augljóslega fengið minna greitt frá ríkinu en önnur sambærileg heimili. Hann segir skarð fyrir skildi að samningi heimilisins við Barnaverndarstofu hafi verið sagt upp. Meðferðarheimilið á Torfastöðum í Biskupstungum hefur um árabil tekið við ungu fólki sem á við vanda stríða samkvæmt samningi við Barnaverndarstofu. Barnaverndarstofa greiddi þó að meðaltali þremur og hálfri milljón krónum minna á ári með meðferðarheimilinu á Torfastöðum en sambærilegum heimilum á Geldingalæk og Laugalandi. Þá er ekki tekið tillit til þess að greiðslum til Torfastaða var ætlað að standa undir kostnaði við nám sem hinum heimilunum var ekki ætlað að gera. Hjónin á Torfastöðum sögðu upp samningi sínum við Barnaverndarstofu í fyrra með árs fyrirvara og gáfu upp óvild Braga Guðbrandssonar forstöðumanns sem skýringu. Barnaverndarstofa hefur jafnan vísað slíkum ásökunum á bug. Félagsmálaráðuneytið fól vegna þessa Ríkisendurskoðun í sumar að gera úttekt á starfsemi heimilisins. Í henni kemur meðal annars fram að sú meðferðarþjónusta sem heimilinu var ætlað að veita á samningstímanum hafi verið í viðunandi samræmi við samninginn sem í gildi var á milli heimilisins og ríkisins. Árni Magnússon, félagsmálaráðherra segist halda að um sé að ræða langvarandi samskiptaerfiðleika, sem endi með því að meðferðaraðilarnir á Torfastöðum hafi séð sig knúna til þess að segja samningnum upp, sem sé miður. Árni segir að á Torfastöðum hafi verið rekið merkilegt starf í um 25 ár og það sé skarð fyrir skildi að þess njóti ekki lengur við. Ríkisendurskoðun telur að þungvæg sanngirnisrök megi færa fyrir uppbótargreiðslu til heimilisins til að bæta upp muninn á endurgjaldi til Torfastaða og til meðferðarheimilina á Geldingalæk og Laugalandi. Árni Magnússon segist ætla að beita sér fyrir því að hjónin á Torfastöðum fái bætur vegna þessa mismunar. Hann segir að líklega sé um að ræða 13-14 milljónir króna.En ráðherra vill ekki svara því hvort eitthvað framhald verði á málinu. Hann segir niðurstöðuna þá að mikill trúnaðarbrestur hafi átt sér stað, en það sé alveg ljóst að gera þurfi upp við meðferðaraðila.
Fréttir Innlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira