Innlent

Lögreglustöðin endurvígð

MYND/Vísir
Lögreglustöðin á Akureyri verður endurvígð í dag eftir gagngerar breytingar á húsnæðinu. Þar verður jafnframt opnuð einskonar varabjörgunarmiðstöð fyrir björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð, ef allt færi þar úrskeiðis á hamfaratímum. Þar er hægt að svara neyðarlínunni og þar er varafjarskiptamiðstöð fyrir ríkislögreglustjóra. Í lögreglustöðinni á Akureyri er líka fangelsi, þar sem fangar afplána dóma og eru sjö fangar þar núna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×