Kristján kjörinn formaður 15. október 2004 00:01
Kristján Gunnarsson var fyrir nokkrum mínútum kjörinn formaður Starfsgreinasambandsins. Fráfarandi formaður sambandsins er svartsýnn við þessi tímamót og óttast að forsendur kjarasamninga séu að bresta. Það er óhætt að segja að það hafi ekki gætt bjartsýni í ræðu fráfarandi formanns Starfsgreinasambandsins, Halldórs Björnssonar, í morgun. Hann sagði samningana frá í vor nánast vera í uppnámi og að ríkisstjórnin hefði annað hvort misskilið kjarasamningana eða að hún kærði sig kollótta um frið á vinnumarkaði. Halldór sagði einkum tvennt hafa áhrif á framvindu samninga. Fyrir það fyrsta gerði ríkisstjórnin ráð fyrir meiri verðbólgu en forsendur samningsins gerðu ráð fyrir. Í öðru lagi hefði sambandið alltaf haft áhyggjur af hinni miklu skattalækkun stjórnarinnar því þær bitni á velferðarkerfinu. Halldór hefur ennfremur áhyggjur af niðurstöðu mála í samningaviðræðum grunnskólakennara við sveitarfélögin. Í ljósi alls þessa þá óttast Halldór að samningunum verði sagt upp í lok næsta árs eða í ársbyrjun 2006. Og nú undir kvöld var Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennnis, kosinn nýr formaður Starfsgreinasambandsins. Hann segir alltaf einhverjar breytingar fylgja nýju fólki en þær verði ákaflega litlar. Sambandið hafi enda verið afar farsælt undir forystu Halldórs. Á döfinni er meðal annars að stækka einingar sambandsins og standa vörð um kaup og kjör verkafólks, hér eftir sem hingað til. Spurður hvort hann deili áhyggjum Halldórs af kjarasamningum segist Kristján klárlega gera það.
Fréttir Innlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Sjá meira