Konunglegur uppruni dreginn í efa 14. október 2004 00:01
Ný bók, Folket eða Fólkið, sem komin er út í Noregi, skekur nú norsku konungsfjölskylduna en í henni er konunglegur uppruni Ólafs Noregskonungs, föður Haraldar núverandi konungs, dreginn í efa. Frá þessu er greint í norska blaðinu Dagbladet í dag. Það er í öðru bindi höfundarins Tors Bomanns Larsens um Folket, eða sögu norsku konungshjónanna Hákonar og Maud, sem þessar upplýsingar koma fram. Hákon og Maud voru foreldrar Ólafs Noregskonungs og afi og amma Haraldar, núverandi konungs. Í bókinni reynir höfundurinn að varpa ljósi á það hver hafi í raun verið líffræðilegur faðir Ólafs Noregskonungs og dregur í efa að það hafi verið Hákon, eins og hingað til hefur verið talið. Hann kynnir þar til sögunnar líflækni Maud drottningar, Englendinginn Sir Francis Laking, sem líklegan líffræðilegan föður hans en Laking meðhöndlaði drottninguna í sjúkrahússmeðferð í Lundúnum árið 1902 sem mikil leynd hvíldi yfir. Í bókinni er einnig að finna mynd af syni læknisins, sem hét Guy Francis Laking og var fæddur árið 1875, og er myndinni stillt upp á móti mynd af Ólafi þegar hann var krónprins á tímum síðari heimstyrjaldarinnar. Því er varpað fram í bók Larsens að læknissonurinn kunni jafnvel að hafa verið sæðisgjafi í þessu sambandi. Larsen hefur þessar upplýsingar eftir heimildamönnum innan evrópskra kóngafjölskyldna og úr gömlum þjóðskjölum. Hann dregur engar endanlegar ályktanir heldur varpar einungis þessum upplýsingum fram. Hans Fredrik Dahl sagnfræðingur segir í viðtali við Dagbladet að þetta sé mál sem hljóti að hreyfa við öllum Norðmönnum og telur að héðan í frá verði að líta á sambandið milli Hákonar og Ólafs í nýju ljósi. Haraldur Noregskonungur skrifar í bréfi til blaðsins að höfundar hafi frelsi til að túlka þessar upplýsingar á mismunandi vegu. Þegar þeim var varpað fram í maí síðastliðnum taldi norska konungsfjölskyldan að þær myndu ekki hafa afdrifaríkar afleiðingar, en í ágúst síðastliðnum ákvað hún samt sem áður að gera Kjell Magne Bondevik forsætisráðherra viðvart um þær.
Erlent Menning Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lífið Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum Tónlist Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Lífið Fleiri fréttir Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Sjá meira