Heimsfrægðin handan við hornið? 10. október 2004 00:01
Gísli, íslenskur popptónlistarmaður sem býr í Ósló, er að gera það gott og það virðist sem heimsfrægðin sé rétt handan við hornið. Gísli er Kristjánsson og er 26 ára gamall. Foreldrar hans fluttu til Noregs fyrir áratug og hann ætlaði að heimsækja þau, en settist að í staðinn. Hann hefur gefið út smáskífu sem hlaut gríðarlega góða dóma í þekktum tónlistartímaritum eins og Q en á mánudaginn kemur fyrsta breiðskífa hans út og það hjá plöturisanum EMI. Hún heitir How about that og kemur út í 15 löndum í Evrópu, Ástralíu og Asíu þannig að óhætt er að segja að um stóran dag sé að ræða. Gísli segist hafa verið að klára þriðja tónleikaferðalag sitt um England á dögunum og nú sé stefnan sett á meginland Evrópu. Að því loknu túrar hann aftur um England. Það er óhætt að segja að velgengnin hafi komið Gísla á óvart enda átti platan upphaflega bara að koma út í Noregi og Englandi. Hann segir þetta mjög gaman en miklu meiri vinnu en hann hélt að þetta væri. Gísli segir sjálfan sig og atvik úr eigin lífi vera yrkisefni sitt. Þetta séu fyrst og fremst sannar sögur en með smá ýkjum. Sjálfur lýsir Gísli tónlist sinni sem eins konar hipp hoppi en honum hefur verið líkt við sveitir eins og Dinosour Jr., Beck og Beta Band en hann fylgir einmitt Beta Band á síðustu tónleikaferðinni sem sú sveit ætlar að fara. Gísli segist ekki vera búinn „að meika það“, eins og það er stundum kallað, en bara það að fá þetta tækifæri er í rauninni að meika það í hans huga.
Innlent Menning Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Tónlist Fleiri fréttir Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Sjá meira