Markalaust hjá FH í Þýskalandi 1. október 2004 00:01
FH-ingar gerðu markalaust jafntefli við þýska 2. deildarliðið Alemania Aachen en þetta var seinni leikur liðanna í Evrópukeppni félagsliða. Eins og alkunna er töpuðu FH-ingar fyrri leiknum stórt, 1-5, á Laugardalsvelli og því vitað að möguleikar FH-inga á að komast áfram væru afar litlir. Viðureignin fór fram í Köln, á glæsilegum leikvangi, og voru tæplega 22 þúsund manns viðstaddir leikinn sem var sá síðasti á tímabilinu hjá FH-ingum - besta tímabili í þeirra sögu, hingað til. Greinilegt var á öllu fyrir leikinn að FH-ingar ætluðu sér ekki að fá á sig fleiri mörk því þetta sókndjarfa lið stillti upp mjög varnarsinnuðu leikskipulagi. Boðið var upp á 5-3-2 þar sem Guðmundur Sævarsson og Davíð Þór Viðarsson voru í bakvarðarstöðunum. Þeir Tommy Nielsen, Freyr Bjarnason, og Sverrir Garðarsson voru allir í miðvarðarstöðunni. Baldur Bett, Heimir Guðjónsson og Ásgeir Gunnar Ásgeirsson voru síðan á miðjunni en í framlínunni var þeim Allan Borgvardt og Atla Viðari Björnssyni stillt upp. Fréttablaðið náði tali af fyrirliða FH, Heimi Guðjónssyni í gærkvöldi. "Dagsskipunin var að halda hreinu og þess vegna breyttum við nú leikskipulaginu hjá okkur og fórum í 5-3-2 og það verður að segjast eins og er að það tók okkur talsverðan tíma að átta okkur á því - það er varla að við munum hvernig á að spila stífan varnarleik. Þeir á hinn bóginn spiluðu svipað og í fyrri leiknum - pressuðu okkur um allan völl," sagði Heimir Guðjónsson, nýkominn úr sturtunni. "Þeir voru mun meira með boltann og áttu einhver þrjú góð færi en við fengum hins vegar tvö mjög góð færi. Atli Viðar (Björnsson) átti skot í stöng og Allan (Borgvardt) komst einn inn fyrir en markvörðurinn varði vel. Í seinni hálfleik prófuðum við aðeins að færa okkur framar og Jón Þorgrímur (Stefánsson) og Emil (Hallfreðsson) komu inná. Auðvitað langaði okkur að ná sigri en þetta var ágætisleikur hjá okkur þegar á heildina er litið, við vörðumst vel og héldum markinu hreinu sem var aðalmarkmiðið og ekkert nema gott um það að segja." Heimir segir leikmenn FH hafa verið afar meðvitaða um möguleikana. "Þessi leikur var náttúrulega bara spilaður upp á stoltið, við gerðum okkur nú ekki miklar vonir um að fara áfram. Við erum hins vegar afar sáttir eftir þetta sumar, brutum ísinn og náðum þeim stóra," sagði Heimir Guðjónsson.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Manchester United fær landsvæði fyrir nýja leikvanginn Fótbolti Áhorfendur beðnir um að mæta ekki Fótbolti Segist hafa sett bölvun á Harry Kane fyrir kvöldið Fótbolti Fleiri fréttir UFC-goðsögnin handtekin fullur á almannafæri Segist hafa sett bölvun á Harry Kane fyrir kvöldið Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Manchester United fær landsvæði fyrir nýja leikvanginn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Dagskráin í dag: Tveir leikir í Bestu deild kvenna og Bestu mörkin Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik „Hefðum við nýtt okkar færi væri ég ekki að fara heim með núll stig“ „Fengum það sem við verðskulduðum“ „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Aðalsteinn eftir fyrsta sigurinn: „Vinnusemi dugnaður og samvinna skilaði sigrinum“ „Vitum að við getum skorað fullt af mörkum“ Wimbledon-meistari í fjögurra ára bann Óskar Smári eftir sigurinn: „Birna er einn hraðasti leikmaðurinn í hausnum“ Anton Ingi eftir tapið: „Við höfum ekkert efni á því að fara í frí“ Uppgjörið: KR - ÍA 5-3 | Átta marka súpa á Meistaravöllum „Þetta var mjög kærkomið“ Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Áhorfendur beðnir um að mæta ekki Birna með þrennu þegar Stjarnan lagði Fram í Garðabæ Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Blikar aftur á toppinn eftir öruggan sigur í Eyjum Fyrsti sigur deildarinnar kominn í hús Messi bætti tvö met gegn Austurríki Norðmenn undirbúa sig fyrir blautan leik í kvöld Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Sjá meira