Bílabíó á miðbakkanum í kvöld 30. september 2004 00:01
Bílabíó verður á miðbakkanum í Reykjavíkurhöfn í kvöld klukkan 21 í tengslum við Nordisk Panorama þar sem sýndar verða skemmtilegar norrænar stuttmyndir. Ætlunin var að bjóða upp á bílabíóið í gær en fresta varð sýningu vegna veðurs. Bílabíó var fundið upp í Ameríku til að auðvelda fjölskyldufólki að fara í bíó án þess að þurfa að setja börnin í pössun eða klæða sig upp. Aftur á móti varð þetta mjög vinsælt hjá unglingum sem notuðu tækifærið til að hittast og kela í bílunum á meðan á sýningu stóð. Frægt atriði er í kvikmyndinni Grease þar sem Danny, sem leikinn var af John Travolta, reynir að kela við Sandy, sem leikin var af Oliviu Newton John, og hún móðgast hrikalega, kýlir hann og stekkur á braut. Félagar þeirra hins vegar gamna sér í aftursætunum á bílunum allt í kring um þau á meðan Danny stendur eftir sorrí, svekktur og sár. Hins vegar er ekki hægt að ætla annað en að fólk sem sækir miðbakkann í kvöld muni skemmta sér vel og börnunum ætti ekki að vera kalt á náttfötunum í aftursætinu. Hvort hryggbrotnir piltar verði á sveimi er ekki hægt að segja til um.
Menning Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Fleiri fréttir Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Sjá meira