Innlent

Brennisteinsfnykur í Eyjum

Nokkrir jarðskjálftar hafa orðið út af Eldeyjarboða á Reykjaneshrygg í gærkvöldi og í nótt. Sá snarpasti mældist 3,3 stig á Richter. Í Vestmannaeyjum hefur orðið vart við mikinn brennisteinsfnyk í bænum og kemur hann úr vesturátt. Gísli Óskarsson, fréttaritari í Vestmannaeyjum, segir það óvenjulegt að finna brennisteinslykt úr vesturátt því hún komi yfirleitt frá jöklunum þegar það er austanátt. Hann segist hins vegar ekki sjá neitt óvenjulegt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×