Innlent

Viðgerðin í Eyjum mistókst

Viðgerð á vatnsleiðslunni til Vestmannaeyja mistókst í gær. Þetta kemur fram á fréttavefnum Eyjar.net. Sigurjón Ingólfsson, veitustjóri hjá Hitaveitu Suðurnesja í Vestmannaeyjum, segir í samtali við vefinn að viðgerð verði haldið áfram í dag. Hann segir að 1200 tonn séu eftir af ferskvatni í Eyjum. Það séu sólarhringsbirgðir og biður hann fólk um að spara vatnið eins og mögulegt er.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×