Innlent

Komum skemmtiferðaskipa fjölgar

Sjötíu skemmtiferðaskip komu til Reykjavíkur í sumar og er það tólf skipum meira en síðasta sumar. Í fréttabréfi Samtaka ferðaþjónustunnar segir að varlega áætlað hafi um 38 þúsund farþegar komið með skipunum. Aukningin er talin verulega ánægjuleg þar sem færst hefur í aukana að Reykjavíkurhöfn sé notuð sem skiptihöfn og farþegar gisti hér áður en þeir fara annað hvort aftur um borð eða heim til sín með flugi. Þannig höfðu um tíu skemmtiferðaskip farþegaskipti hér í sumar sem er helmingsaukning frá í fyrra. Alls komu 54 skemmtiferðaskip til Akureyrar í sumar og hafa um 70 skip tilkynnt komu sína þangað á næsta ári.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×