Innlent

Bónus opnar í Spönginni

Verslun Bónuss í Spönginni verður opnuð á ný í dag eftir miklar breytingar. Verslunin hafði verið lokuð um tíma þar sem verið var stækka hana. Gamla verslunin var um 680 fermetrar og með 5 afgreiðslukassa en eftir breytingarnar verður hún um 1.400 fermetrar og með 9 afgreiðslukassa. Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, segir að framkvæmdir hafi gengið betur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Með auknu rými verði í fyrsta skipti hægt að bjóða upp á sérvöru í Spönginni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×