Innlent

Heimsótti Ólaf á Bessastaði

Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tók á móti Tarja Halonen, forseta Finnlands, á Bessastöðum í gær en Halonen er hingað komin til að taka þátt í málþingi sem haldið er vegna 30 ára afmælis norræns samstarfs um jafnréttismál. Málþingið ber yfirskriftina "Hver erum við - hvert stefnum við og ásamt Halonen munu þar flytja erindi frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, og Marko Pomerants, félagsmálaráðherra Eistlands.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×