ASÍ skorar á félagsmálaráðherra 23. september 2004 00:01
Fólk í fæðingarorlofi á ekki rétt á sumarleyfisdögum meðan á orlofi stendur. Þetta er niðurstaða héraðsdóms í máli sem ASÍ höfðaði gegn Tryggingastofnun. ASÍ skorar á félagsmálaráðherra að eiga frumkvæði að því að tryggja þennan rétt. Tryggingastofnun var í morgun sýknuð af kröfum ASÍ sem taldi að reikna bæri orlofsdaga í fæðingarorlofi og Fæðingarorlofssjóður skyldi standa straum af því. Ríkisstarfsmenn í aðildarfélögum ASÍ sömdu um þennnan rétt í síðustu kjarasamningum og eiga því rétt á orlofsgreiðslum frá vinnuveitanda á meðan á fæðingarorlofi stendur. Niðurstaða Héraðsdóms er rökstudd með því að engin fyrirmæli um þetta séu í lögum um fæðingar og foreldraorlof né öðrum lögum. Misræmi milli réttinda ríkisstarfsmanna og launþega á almennum vinnumarkaði breyti engu þar um. Halldór Grönvold skrifstofustjóri ASÍ segir að dómurinn sé óásættanlegur og í ósamræmi við yfirlýst markmið laganna um að jafna aðstöðu fólks á vinnumarkaði. Hann segir dóminn staðfesta það að fæðingarorlof sé styttra en lögin geri ráð fyrir. Með þessari framkvæmd sé tekið af hefðbundnum orlofrétti fólks í fæðingarorlofi. Halldór segir ekki víst að dómnum verði áfrýjað enda sé þetta kannski fremur pólitísk spurning en lögfræðileg. Hann bendir ennfremur á að fyrrverandi félagsmálaráðherra hafi haft sama skilning á málinu og ASÍ. Hann segir þetta spurningu um það hvort fólk á vinnumarkaði eigi að njóta jafnréttis eða ekki. Það sé hlutverk félagsmálaráðherra að eiga frumkvæði að breytingum.
Fréttir Innlent Mest lesið Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Innlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Erlent Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Innlent Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Innlent Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Erlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Fleiri fréttir Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs Sjá meira