Burðarás sameinast Kaldbaki 23. september 2004 00:01
Burðarás stefnir að því að stórauka fjárfestingar utan landsteinanna eftir sameiningu við fjárfestingarfélagið Kaldbak í dag. Helstu forkólfar Kaldbaks eru Samherji og Baugur, en Landsbankinn og Björgólfsfeðgar eru helstu eigendur Burðaráss. Fulltrúar Samherja, Burðaráss og Baugs, skrifuðu undir samninga í húsakynnum Baugs síðdegis í dag. Verið er að leggja Kalbak niður og rennur hann nú inn í Burðarás. Markmiðið er að búa til eina sterka heild til fjárfestinga erlendis. Kea, Kaupfélag Eyfirðinga var í gær stórhluthafi í Kaldbaki, en hinir kjölfestueigendurnir voru Baugur og Samherji. Í morgun keypti Samson Holding, eignarhaldsfélag í eigu Björgólfsfeðga hlutafé KEA í Kaldbaki. Nú undir kvöld voru nærri 77% hlutafjár Kaldbaks komin í hendur Burðaráss, sem greiddi fyrir með hlutabréfum í sameinuðu félagi. Öðrum hluthöfum Kaldbaks verður boðið sama verð og stærstu eigendunum á hluthafafundi á næstunni. Lokað var fyrir viðskipti Kaldbaks, Samherja og Burðarás í Kauphöll Íslands í morgun. Friðrik Jóhannsson, forstjóri Burðaráss, segir að til verði félag sem verður 25% stærra en Burðarás sé í dag og markaðsvermætið verði um 80 milljarðar króna og því verði slagkrafturinn meiri til þátttöku í stærri verkefnum erlendis. Hann segir að alltaf sé verið að skoða verkefni erlendis, þar sem sjónir manna beinist einkum að verkefnum á sviði fjármálaþjónustu, tækni og fjarskipta. Þó séu allir möguleikar opnir. Friðrik segir ferlið hafa tekið heldur lengri tíma en reiknað hafi verið með.
Fréttir Innlent Mest lesið Annar árekstur á sama vegkafla með klukkustundar millibili Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Einn þeirra handteknu sautján ára Innlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Innlent Fleiri fréttir Annar árekstur á sama vegkafla með klukkustundar millibili Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Sjá meira