6 í haldi vegna fíkniefnasmygls 23. september 2004 00:01
6 Íslendingar á fertugsaldri eru í haldi lögreglu í tengslum við rannsókn eins allra stærsta fíkniefnamáls sem komið hefur upp hér á landi til þessa. Rannsóknin sem staðið hefur yfir frá því í mars er afar umfangsmikil á íslenskan mælikvarða. Þó enn eigi eftir að hnýta einhverja hnúta liggur ýmislegt fyrir. Málið hófst með því að þrjú kíló af amfetamíni og nokkuð magn kókaíns fundust í vörusendingu með Dettifossi Eimskipafélagsins. Í júlí fundust aftur fíkniefni í sendingu sem flutt var með sama skipi og segja heimildir að þá hafi magn verið enn meira en í mars. Enginn var handtekinn fyrr en síðasta föstudag þegar karlmaður um þrítugt var settur í járn í Vestmannaeyjum eftir að stór sending af LSD fannst í póstsendingu. Þann sama dag var íslenskur karlmaður handtekinn í Rotterdam, og eftir það þrír aðrir á Íslandi. Einum var sleppt að yfirheyrslu lokinni. Hollenska lögreglan gerði húsleit á heimili hins handtekna í Rotterdam. Þar var staddur sjötti maðurinn sem var handtekinn eftir að fíkniefni fundust á heimilinu. Búið er að úrskurða þá fjóra sem handteknir voru hér á landi í tveggja og þriggja vikna gæsluvarðhald en lögreglan í Hollandi hefur rýmri heimildir til að halda fólki án úrskurðar dómara. Mögulegt er að íslenska lögreglan fari fram á að annar hinna handteknu verði framseldur til Íslands.
Fréttir Innlent Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Sjá meira