Innlent

Samfylking tekur undir með ASÍ

Þingflokkur Samfylkingarinnar tekur undir gagnrýni ASÍ á Brim vegna kjarasamningsins á Sólbaki EA, en þar virðist eitt skilyrðið vera að sjómenn séu ekki í stéttarfélagi. Í ályktun sem þingflokkurinn sendi frá sér í dag er minnt á að Brim sé aðili að LÍÚ, sem nú eigi í samningaviðræðum við samtök sjómanna. LÍÚ beri ábyrgð á því að félgaar þess virði viðteknar samskiptavenjur og einnig er minnt á að LÍÚ hafi vanist því að kjaramál þess séu leyst með dómi og vinnubrögðin nú sýni vel hvað slíkar lausnir séu varhugaverðar. Þingflokkur Samfylkingarinnar segir að í samningi Brims við áhöfn Sólbaks felsit aðför að skipulagðri verkalýðshreyfingu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×