Innlent

Athugasemdir nær alls staðar

Skoðun Löggildingarstofu hefur leitt í ljós að raflögnum og rafbúnaði í íslenskum gisti- og veitingahúsum er víða ábótavant. Rafmagnsöryggisdeild Löggildingarstofu hefur síðustu tvö ár látið skoða raflagnir á þriðja hundrað gisti- og veitingahúsa víðsvegar um landið. Gerðar voru athugasemdir við merkingu búnaðar í rafmagnstöflum í nær öllum gisti- og veitingahúsum, eða í 91 prósenti tilvika. Eins voru gerðar athugasemdir við frágang tengla í 76 prósentum skoðana og töfluskápa í 76 prósentum tilvika. "Gamall og bilaður rafbúnaður og aðgæsluleysi forráðamanna eru meðal helstu orsaka rafmagnsbruna og því er afar mikilvægt að rafbúnaður í gisti- og veitingahúsum sé ávallt valinn með tilliti til staðsetningar og notkunar. Úr sumum ágöllum má bæta með betri umgengni en flestar athugasemdirnar kalla á fagþekkingu," segir í tilkynningu Löggildingarstofu. Fram kemur að markmiðið með úttekt stofnunarinnar hafi verið að fá sem gleggsta mynd af ástandi raflagna og rafbúnaðar í gisti- og veitingahúsum og koma á framfæri ábendingum um það sem betur mætti fara. Skýrslu Löggildingarstofu um ástand raflagna í gisti- og veitingahúsum verður dreift til allra umráðamanna gisti- og veitinghúsa í landinu og til löggiltra rafverktaka.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×