Innlent

Forsvarsmenn kennara funda

Samningamenn kennarasambandsins hafa ráðið ráðum sínum í húsakynnum Ríkissáttasemjara í morgun og hafa þar fyrst og fremst notið vinnuaðstöðunnar. Ekkert hefur hinsvegar sést til samningamanna sveitarfélaganna og ekki er vitað til þess að nefndirnar hafi haft neitt samband og sáttasemjari hefur engu miðlað á milli þeirra. Næsti formlegi samningafundur hefur verið boðaður klukkan níu í fyrramálið og hefur hvorugur deilandi látið í ljós bjartsýni fyrir þann fund.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×