Innlent

Raflögnum ábótavant

Raflögnum og rafbúnaði í íslenskum gisti- og veitingahúsum er víða ábótavant, samkvæmt skoðun rafmagnsöryggisdeildar Löggildingarstofu. Deildin hefur skoðað raflagnir á þriðja hundrað gisti- og veitingahúsa víðsvegar um landið undanfarin þrjú ár. Athugasemdir voru gerðar við merkingu búnaðar í rafmagnstöflum í 91% tilvika. Þá var gerð athugasemd við frágang tengla í 76% tilvika og töfluskápa í 76% tilvika. Gamall og bilaður rafbúnaður og aðgæsluleysi forráðamanna eru meðal helstu orsaka rafmagnsbruna í húsum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×