Innlent

76% vilja mislæg gatnamót

Mikill meirihluti landsmanna, eða tæp 76 prósent þeirra, sem afstöðu tóku í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins, telur brýnna að ráðast í gerð mislægra gatnamóta á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, en að ráðast í gerð Sundabrautar. Borgaryfirvöld hafa hinsvegar ákveðið að Sundabrautin hafi forgang, en að ráðist verði í einhverjar bráðabirgðaaðgerðir á gatnamótunum, sem eru hættulegustu gatnamót á landinu, samkvæmt slysatölum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×