Aðför eða framför? 21. september 2004 00:01
Sjómannasambandið sakar útgerðarfélagið Brim um aðför að stéttarfélögunum með því að stofna rekstrarfélag um togarann Sólbak. Framkvæmdastjóri Brims segir kerfið vera framför. Rekstrarfélag Sólbaks EA stendur utan Landssambands íslenskra útvegsmanna og utan stéttarfélaga sjómanna. Færri verða í áhöfn en á samskonar skipum og samkomulag er um að ekki verði lengur 30 klukkustunda stopp eftir hverja veiðiferð, heldur haldið á veiðar eftir löndun. Hver sjómaður fær sömu laun fyrir hvern dag úti á sjó, eitt uppgjör verður og mánaðarleg kauptrygging í stað launa á vikufresti. Guðmundur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Brims, segir skipverja sátta og fyrirkomulagið til hagsbóta fyrir alla en Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands, telur þetta lögbrot og sakar útgerðarfélagið um að hóta sjómönnum og þvinga þá til samninga. Sævar segir útgerðarmenn sem hagi sér svona sjá stundarhagsmuni í samningunum. Framtíðarhagsmunirnir séu aftur á móti engir. Hann segir ekki við það búið að stríðsástand ríki alla daga, þ.e. að allir semji við alla og engin friðarskylda. Launa- og réttindabarátta sjómanna fer aftur um áratugi í þessu tilviki að sögn Sævars. Guðmundur segir enga breytingu verða á kjörum sjómanna við þessa samninga. Það eina sem breytist sé að sjómenn þurfi ekki að hanga um borð í 30 klukkustundir eftir hverja veiðiferð heldur geti þeir róið, í viku eða hálfan mánuð í einu, og fengið svo vikufrí. Þetta sé því framför en ekki afturför. Myndin er af Sólbaki.
Fréttir Innlent Mest lesið Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Innlent „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Innlent Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Innlent „Það koma bara færri“ Innlent Réðst að hópi drengja í sundlaug Innlent Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Innlent „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína Innlent Fleiri fréttir Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notuðust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Sjá meira