Viðvörun vegna orkufólks 21. september 2004 00:01
Landlæknisembættið hefur sent út viðvörun vegna námskeiðahalds "orkufólksins" svokallaða hér á landi. Um er að ræða Bretana, Lyndu og Stephen Kane. Þau munu nú vera búsett í Frakklandi, samkvæmt upplýsingum Gitte Larsen, sem búsett er hér á landi og er tengiliður parsins. Kvartanir eru teknar að berast til embættisins vegna áhrifa þessara námskeiða, einkum á fjölskyldulíf aðstandenda þátttakenda. Fréttablaðið greindi frá námskeiðahaldi fólksins um síðustu helgi, meintum tilgangi námskeiðanna og ærnum kostnaði þátttakenda. Í kjölfarið kom tilkynning frá Landlæknisembættinu í gær þar sem segir: "Ástæða er til að benda fólki eindregið á að engin líffræðileg eða sálfræðileg vísindaleg þekking liggur á bak við aðferðir þeirra sem að orkunámskeiðunum standa. Hér virðist því miður vera um fremur óprúttna fjárplógsstarfsemi að ræða og leyfir Landlæknisembættið sér því að vara fólk eindregið við því sem þarna er fram borið." Auk þess að selja aðgang að námskeiðunum fyrir 20.000 krónur fyrir hvern einstakling, selja ráðgjöf og viðtöl allt upp í 7.000 krónur og svokallað orkuegg fyrir tæpar 3000 krónur stykkið. Hefur Kane-fólkið talið fólki trú um að þar sem læknar og lyfjameðferðir þeirra hefðu ekki ráðið við illvíga sjúkdóma gæti það tekið við. Gitte nefndi við Fréttablaðið í síðustu viku sjúkdóma á borð við vefjagigt og síþreytu. Meðferð til betra lífs felst meðal annars í því að sveifla pendúl til að spyrja um góðar eða slæmar afleiðingar ákvarðana. Þá er þátttakendum kennt að meta orku annarra með því að tengja sig við þá með því að nota ákveðnar fingrahreyfingar, og horfa síðan í augu viðkomandi meðan á matinu stendur. Ef sá sem á að meta er fjarstaddur má nota sýni úr honum, þar á meðal "blóð, neglur og hár," eins og stendur í kennslugögnum Kane-fólksins, sem blaðið hefur undir höndum. Betri séu þó sýni svo sem að sjá ljósmynd af viðkomandi, heyra rödd hans eða sjá skrift hans, nota röntgenmyndir eða ýmis konar niðurstöður úr líkamsskanna. Kane fólkið er horfið af landi brott.
Fréttir Innlent Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira