76 prósent vilja mislæg gatnamót 21. september 2004 00:01
Um 76 prósent landsmanna telur brýnna að ráðast í gerð mislægra gatnamóta við Miklubraut og Kringlumýrarbraut en byggingu Sundabrautar. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. R-listinn hefur lýst því yfir að vilji sé til þess hjá borgaryfirvöldum að hefja bygging Sundabrautar jafnvel strax á næsta ári. Sundabrautin hefur þannig verið sett efst á forgangslista stórframkvæmda í Reykjavík og gerð mislægra gatnamóta við Miklubraut og Kringlumýrarbraut slegið á frest. Sjálfstæðismenn í borgarstjórn eru á móti þessari forgangsröðun og hafa skorað á Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra að þrýsta á borgaryfirvöld að fara byggja mislæg gatnamót við Miklubraut og Kringlumýrarbraut á undan Sundabraut. Af þeim sem tóku afstöðu í könnuninni segjast 75,9 prósent brýnna að ráðast í gerð mislægu gatnamótanna en 24,1 prósent segja Sundabraut meira áríðandi verkefni. Marktækur munur er á afstöðu fólks eftir búsetu. Íbúar í þéttbýli eru hlynntari mislægu gatnamótunum. Tæplega 78 prósent þeirra segja brýnna að ráðast í framkvæmdir við þau samanborið við 72 prósent íbúa á landsbyggðinni. Töluvert fleira landsbyggðarfólk er óákveðið eða svarar ekki, tæplega 32 prósent samanborið við tæplega 12 prósent íbúa í þéttbýli. Ekki er marktækur munur á afstöðu kynjanna til málsins. Könnunin var gerð á laugardaginn. Spurt var: Hvort telur þú brýnna að ráðast fyrst í að gera mislæg gatnamót við Kringlumýrarbraut og Miklubraut eða í gerð Sundabrautar? Hringt var í 800 manns, skipt jafnt milli kynja og búsetu. Alls tóku 73,8 prósent þeirra afstöðu.
Fréttir Innlent Mest lesið Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Innlent Ítrekað hjólað á móti umferð Innlent Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Innlent „Hverjir eru á bak við það?“ Erlent Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Innlent Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Veður Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent Fleiri fréttir Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Sjá meira