Innlent

Símreikningar í markaðsstarfi

Viðskiptavini fjarskiptafyrirtækisins Og Vodafone var brugðið þegar starfsmaður fyrirtækisins hafði samband við hann, vitnaði til símnotkunar hans og bauð sparnaðarleið ef hann vildi gera bindandi samning til lengri tíma við fyrirtækið. Viðskiptavininum var boðið að bæta við "símavini" gegn því að gerður yrði samningur um heildarsímaþjónustu til 12 mánaða. Var honum bent á hversu mikið hann hefði getað sparað í liðnum mánuði með því að vera með ákveðið símanúmer skráð sem "símavin". Og Vodafone segist starfa innan þess ramma sem fyrirtækinu er markaður í lögum. Pétur Pétursson, forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála hjá Og Vodafone, segir að starfsmenn á sviði viðskiptaverndar bjóði stundum vildarviðskiptavinum sérstök kjör og þarna hafi trúlega verið um slíkt tilvik að ræða. Hann segir alla starfsmenn sem höndla með trúnaðarupplýsingar hafa undirritað trúnaðaryfirlýsingu og áréttaði að ekki hefðu aðrir aðgang að slíkum upplýsingum en þeir sem þyrftu vegna starfssviðs síns. Í níunda kafla fjarskiptalaga, sem fjallar um vernd persónuupplýsinga og friðhelgi einkalífs, segir að "með samþykki áskrifanda" sé fjarskiptafyrirtæki heimilt að vinna úr gögnum vegna markaðssetningar fjarskiptaþjónustu. Auk ákvæðis um samþykki áskrifenda segir að "úrvinnslu gagna samkvæmt þessari grein skulu þeir einir sinna sem eru undir stjórn fjarskiptafyrirtækja og sjá um gerð reikninga eða stjórnun fjarskiptaumferðar, fyrirspurnir notenda, uppljóstrun misferlis, markaðssetningu fjarskiptaþjónustu eða virðisaukandi þjónustu". Áskriftarskilmálar bæði heimasíma- og farsímaþjónustu Og Vodafone eru aðgengilegir á vef fyrirtækisins, en í þeim er ekki kveðið á um að viðskiptavinir samþykki að fyrirtækið vinni úr gögnum vegna markaðssetningar. Persónuvernd sagðist ekki geta skorið úr um það símleiðis hvort brotið væri gegn persónuverndarsjónarmiðum með markaðssetningu Og Vodafone. Sigurjón Ingvason, forstöðumaður lögfræðideildar Póst- og fjarskiptastofnunar, áréttaði að undir ákveðnum kringumstæðum væri fjarskiptafyrirtækjum heimil notkun persónuupplýsinga til markaðssetningar, en kvaðst að óathuguðu máli ekki geta sagt til um þetta einstaka tilvik.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×