Æ fleiri bækur prentaðar erlendis 20. september 2004 00:01
Nokkuð hefur færst í vöxt á liðnum árum að íslenskar bækur séu prentaðar erlendis. Sigurður Svavarsson, útgáfustjóri Eddu og formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, segir þó að meirihluti íslenskra bóka sé prentaður hérlendis. "Prentsmiðjur á Íslandi eru vel samkeppnishæfar í gæðum og oft í verðlagningu líka. Tilhneigingin er samt sem áður sú að fleiri bækur verði prentaðar erlendis. Stærstu prentaðilar hérlendis munu líka ábyggilega leita enn frekar eftir verkefnum erlendis á næstu árum," segir Sigurður. Hann segir að erlendar prentsmiðjur sýni íslenskum bókamarkaði þó nokkurn áhuga. "Hingað koma reglulega sölumenn frá norrænum prentsmiðjum og hér á landi starfa aðilar sem miðla prentverki, til dæmis til Lettlands og Slóveníu. Svokallað samprent er líka drjúgur hluti bókaútgáfu á Íslandi og þá ræður íslenski útgefandinn ekki prentstað, heldur kaupir útgáfuréttinn og prentverkið í einum pakka. Samsprentsbækur eru að drjúgum hluta prentaðar í Austurlöndum fjær. Íslenskir útgefendur leita mest með sín verk til prentsmiðja á Norðurlöndum sem sérhæfa sig á ákveðnum sviðum. Útgefendur á Íslandi munu þó áfram kjósa að halda helstu sölubókum sínum hjá innlendum prentsmiðjum, einkum flóknum og mikið myndskreyttum verkum. Menn vilja allra helst geta fylgt þeim eftir alla leið inn á prentsmiðjugólf og svo ekki síst þeim bókum sem menn ætla að mokseljist fyrir jól. Því þurfa útgefendur að geta kallað eftir endurprentunum með afar skömmum fyrirvara sem íslensku smiðjurnar geta einar staðið við," segir Sigurður. Hann segir íslenska lesendur ekki þurfa að hafa áhyggjur af hækkandi bókaverði um jólin. "Verð á prentverki hefur verið hagkvæmt undanfarin ár, pappírsverð hefur verið mjög stöðugt og samkeppnin hefur verið mikil. Þetta er meginástæða þess að útsöluverð á bókum hefur sáralítið breyst, þrátt fyrir að ýmsir aðrir þættir hafi hækkað umtalsvert."
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Sjá meira