Bruni í Klumba 18. september 2004 00:01
Um tvö hundruð milljóna króna tjón varð þegar fisksverkunin Klumba á Ólafsvík gjöreyðilagðist í eldi í nótt. Tuttugu og fimm manns misstu vinnuna, sem er um einn tíundi vinnandi fólks á Ólafsvík. Eigendur stefna ótrauðir að því að byggja fyrirtækið upp aftur. Brunavarnir í húsinu voru ófullnægjandi miðað við nútímakröfur. Klukkan hálf tvö í nótt tilkynnti vegfarandi um eld í húsinu, en þar fór fram hausaþurrkun, slökkvilið kom á staðinn aðeins nokkrum mínútum seinna, en fljótlega var ljóst að við ekkert varð ráðið, enda breiddist eldurinn út með ógnarhraða. Jón Þór Lúðvíksson, slökkviðliðsstjóri, segir hraða eldsins hafa verið svo mikinn að slökkviliðsmennirnir hafi hreinlega ekki þorað upp á þak. Allt hafi orðið alelda á svipstundu og ekkert hafi verið við ráðið. Slökkviliðsmenn voru enn að slökkva í glæðum í dag, og telja að þess vegna geti logað í þeim í nokkra daga í viðbót. Húsnæðið fullnægði ekki nútíma eldvarnarkröfum, enda engin eldvarnarhólf í húsinu né eldvarnarhurðir. Því breiddist eldurinn svo hratt út. Gerðar höfðu verið athugasemdir, en engar áminningar veittar. Jón segir að yfirleitt séu ekki gerðar verulegar athugasemdir á meðan allt gangi snurðulaust fyrir sig og því hafi ekkert verið að gert. Í eldsvoðanum brann niður á nokkrum stundum fimmtán ára uppbyggingarstarf. Leifur Magnússon, framkvæmdastjóri og einn eiganda Klumba, var vakinn upp með hringingu um miðja nótt, og slík hringing þýddi aðeins eitt, að eitthvað slæmt væri á seyði. Hann segist strax hafa áttað sig á að eitthvað mikið væri að. Leifur segir verksmiðjuna hafa verið þokkalega tryggða. Hann treysti sér ekki enn sem komið er til að meta hversu mikið tjónið er. Þó sé ljóst að það sé yfir eitt hundrað milljónir króna. Ekki aðeins varð stórtjón í eldsvoðanum, því bruninn er líka mikil blóðtaka fyrir atvinnulífið á staðnum. Lætur nærri að hér hafi tíu prósent vinnandi manna í Ólafsvík misst vinnuna, en þar er fyrir nánast ekkert atvinnuleysi. Leifur segist munu greiða starfsfólki sínu laun eitthvað áfram, og er ákveðinn í því að byggja starfsemina upp aftur. Hann segir að þrátt fyrir að hann sé ekkert unglamb muni hann halda áfram að gera eitthvað, fyrir sig og fólkið í bænum. Bæjarstjóri Ólafsvíkur segist himinlifandi yfir þessum yfirlýsingum Leifs, og um leið bjartsýnn á að atvinnuleysi fólksins verði aðeins tímabundið.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Sjá meira