Á spítala eftir rafstuð 18. september 2004 00:01
Drengur á sautjánda ári frá Selfossi var í gær fluttur á Barnaspítala Hringsins með hjartsláttartruflanir eftir að jafnaldrar hans tóku í sundur einnota myndavél og gáfu honum rafstuð. Fikt með einnota myndavélar er orðið algengt meðal unglinga og getur það reynst stórhættulegt að sögn lögreglu. Drengurinn var útskrifaður í morgun og var líðan hans þá orðin góð. Atvikið bar að með þeim hætti að jafnaldrar drengsins, unglingar á aldrinum 16-17 ára, gáfu honum rafstuð í hálsinn eftir að hafa tengt flass á einnota myndavél þannig að hægt væri að gefa með því stuð. Lögreglan á Selfossi segir mikið mildi að ekki hafi farið verr, enda geti athæfi af þessu tagi verið hættuleg, sérstaklega ef þeir sem fyrir stuðinu verða eru veikir fyrir. Að sögn lögreglunnar er tilvikið ekki einsdæmi og hefur fréttastofan heimildir fyrir því að þetta myndavélabrölt sé nú stundað af mörgum unglingum. Ungir viðmælendur sem fréttastofan ræddi við í dag og höfðu fengið rafstuð úr einnota myndavél, sögðust einfaldlega telja að um fikt og leik væri að ræða og eflaust áttuðu þeir sem þetta stunduðu sig ekki á hættunni sem því kynni að fylgja. Þær gætu þó sjálfar vottað um það að straumurinn væri mjög mikill og ylli miklum sársauka. Ekki er vitað nákvæmlega hve sterkur strumurinn úr rafstuði af þessu tagi er, en líklega er hann þó miklu meiri en úr til að mynda stuðkylfum.
Fréttir Innlent Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Enn eitt innbrotið í miðbænum Innlent Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Erlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Erlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Fleiri fréttir Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Sjá meira