Verkfalli mótmælt 17. september 2004 00:01
Mótmælastaða foreldra grunnskólabarna hófst á Austurvelli nú klukkan tólf. Með henni eru foreldrar að mótmæla fyrirhuguðu kennararverkfalli og knýja á um lausn í kjaradeilu kennara og sveitarfélaga. Framkvæmdastjóri Heimilis og skóla segir að verkfall geti haft afdrifaríkar afleiðingar. Samningafundur í deilu kennara við sveitarstjórnir stóð langt fram á nótt í húsakynnum Ríkissáttasemjara. Ekki er ljóst hverjar lyktir fundarins urðu eða hvert verður framhald viðræðnanna, en boðað verkfall grunnskólakennara hefst á mánudagsmorgun, náist ekki samkomulag um helgina. Komi til verkfalls verður nám um 45 þúsund barna á aldrinum 6 til 15 ára í uppnámi og foreldrar verða í erfiðleikum með að sækja vinnu sína. Nú klukkan tólf hófst mótmælastaða foreldra grunnskólabarna á Austurvelli, en þar er fyrirhuguðu verkfalli mótmælt og deilendur hvattir til þess að leysa málið. Mótmælastaða hefur ennfremur verið boðuð á sama stað og á sama tíma, á morgun laugardag og á sunnudag. Foreldrar á landsbyggðinni og Heimili og skóli, sem eru landssamtök foreldra, hafa hvatt foreldra í öðrum sveitarfélögum til þess að grípa til samskonar aðgerða. Anna María Proppé, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, segir verkfall geta haft afdrifaríkar afleiðingar. Hún segir mest um vert að huga að börnunum, sem eiga lagalagan rétt á að ganga í grunnskóla og eiga rétt á ákveðnum stundafjölda og því vilji Heimili og Skóli ýta á það að lausn verði fundin, þannig að börnin geti haldið áfram í skólanum. Anna segir verkfall hafa gífurleg áhrif á bæði fjölskyldur og samfélagið í heild sinni, enda séu foreldrar í vandræðum með börn sín á meðan á verkfalli standi. Þá séu áhrif á börnin afar slæm, þeim sé kippt út þegar þau eru rétt nýbyrjuð, sem sé sérstaklega slæmt fyrir yngstu börnin. Landssamtökin Heimili og Skóli hafa sent opið bréf til Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þar segir meðal annars að margföldunaráhrif verkfalls geti orðið mjög víðtæk fyrir samfélagið í heild og því sé ábyrgð deilenda mikil. Verkfall sé neyðarvopn, en nauðsynlegt sé að leysa málið, þannig að sú óvissa sem nú blasir við, skapist ekki reglulega í menntakerfinu. Ennfremur segir að fyrst og fremst þurfi að hugsa um þarfir barnanna, og ekki megi láta deilur fullorðinna einstaklinga skyggja á þær.
Fréttir Innlent Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira