Innlent

Samþykkt að selja í Eyjum

Meirihluti bæjastjórnar í Vestmannaeyjum samþykkti á fundi sínum undir miðnætti að selja átta fasteignir bæjarins, sem meðal annars hýsa skóla og íþróttafélög, og leigja þau aftur af kaupandanum til þrjátíu ára. Afgreiðsla málsins hékk á bláþræði þartil Guðrún Erlingsdóttir forseti bæjarstjórnar, frestaði á síðustu stundu boðuðum fundi, sem átti að hefjast klukkan sex. Ástæða þess var sú að Andrés Sigmundsson bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins,og stuðningsmaður meirihlutans, hafði orðið veðurtepptur og var væntanlegur til Eyja með Herjólfi síðar um kvöldið, en Guðríður Ásta Halldórsdóttir varamaður hans, er hætt að styðja meirihlutann og er nú á máli minnihlutans í eignasölumálinu. Stefndi því allt í sögulegan fund, en Andrés var mættur þegar fundurinn hófst loks á tólfta tímanum í gærkvöldi og tók afgeiðsla mála þá aðeins þrjú korter, enda mættu fulltrúar minnihlutans ekki á fundinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×