Lyfjaauglýsingar stöðvaðar 17. september 2004 00:01
Lyfjastofnun hefur stöðvað sjónvarpsauglýsingar frá lyfjafyrirtækinu Glaxo-Smith-Kline um bólusetningar. Einungis er heimilt að auglýsa lausasölulyf, en þó skiptir máli í hvaða miðlum slíkar auglýsingar eru birtar. Í sjónvarpsauglýsingu frá Glaxo-Smith-Kline var fólk sem hyggur á ferðalög til fjarlægra staða varað við lifrarbólgu A. Lyfjastofnun hefur farið fram á að birting auglýsingarinnar verði stöðvuð, enda sé óheimilt að auglýsa lyfseðilsskyld lyf hér á landi. Lyfjaheiti eru þó hvergi nefnd í auglýsingunni heldur er fólk eingöngu hvatt til að leita sér upplýsinga hjá læknum um bólusetningu. Rannveig Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar, segir Glaxo-Smith-Kline einnig hafa sent bæklinga inn á heimili landsmanna og þar séu ákveðin lyf nefnd á nafn. Hjörleifur Þórarinsson, framkvæmdastjóri Glaxo Smith Kline, segir fyrirtækið hafa fengið undanþágu hjá heilbrigðisráðuneytinu fyrir prentuðu auglýsingunum. Við þá undanþágu kannast forstjóri Lyfjastofnunar ekki og segir að með réttu ætti að bera slíkt undir stofnunina. Lyfjafyrirtæki hafa fengið undanþágu til að auglýsa bólusetningarlyf og lausasölulyf en athygli vekur að þau má auglýsa í öllum öðrum miðlum en sjónvarpi. Ástæðuna segir forstjóri Lyfjastofnunar vera þá að sjónvarpsauglýsingar séu áhrifameiri en blaðaauglýsingar. Heilbrigðisyfirvöld vilji ekki hvetja til aukinnar lyfjaneyslu og því megi ekki auglýsa lyf í sjónvarpi og skiptir þá engu hvort þau eru lyfseðilsskyld eður ei.
Fréttir Innlent Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira